Nýlega keypti ég glerperlur frá MIYUKI, sjá næsta póst á undan þessum.
Ég hnýtti nokkrar tilraunaflugur með perlunum bæði ofan á og undir flugunum, þetta gefur ýmsa möguleika.
Sjá myndirnar hér fyrir neðan.
Flugurnar með dropann ofan á flugunni eru hnýttar eftir uppskrift í blaðinu en þær með dropann neðan á er mín hugmynd, svona í ætt við púpur með appelsínugulan eggjaklasa sýnilegan á miðjum búk.