Boðið í veiði – Hlíðarvatnsdagurinn

Stangaveiðifélögin, sem eru með aðstöðu við Hlíðarvatn í Selvogi, bjóða gestum að koma og veiða án endurgjalds í vatninu, sunnudaginn 12. júní næstkomandi. Þetta eru Stangaveiðifélagið Árblik, Ármenn, Stangaveiðifélag Hafnafjarðar, Stangaveiðifélag Selfoss og Stangveiðifélagið Stakkavík.
Fulltrúar frá félögunum verða á staðnum og munu leiðbeina gestum um agn, veiðistaði og aðferðir. Einnig verður að fá á staðnum ýmsar upplýsingar um vatnið og veiðina í því.
Gestum er frjálst að koma árla morguns á sunnudeginum og veiða til kl. 17:00 um kvöldið. Leyfilegt agn er fluga og spónn. Einungis er veitt frá landi. Gestir eru vinsamlegast beðnir að skrá aflann hjá einhverju félaganna. Skrá þarf tegund, þyngd, lengd og agn. Gestum er bent á að lausaganga hunda við vatnið er óheimil vegna hættu fyrir sauðfé. Þeir, sem sótt hafa vatnið að undanförnu, hafa veitt ágætlega, þannig að vel gæti fiskast, ef þannig viðrar.

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.